Aðalskipulag Reykjavíkur 2040
Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 334
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram lýsing skipulagsgerðar og drög að tillögu um breytta landnotkun í Laugardal. Lagt er til að tillagan verði kynnt og vísað til borgarráðs.
Svar

Samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokki fólksins að kynna lýsingu og vinnslutillögu að aðalskipulagi í samræmi við 1. - 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna og vinnslutillögunnar hjá Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins, Kópavogsbæjar, Garðabæjar, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Seltjarnarneskaupstaðar, Mosfellsbæjar, Kjósarhrepps, Skipulagsstofnunar, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Minjastofnunar, Borgarsögusafns, Íbúasamtaka Laugardals og einnig kynna hana fyrir almenningi.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.
Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Það er fagnaðarefni að hér sé verið að koma fyrir skólahúsnæði í Laugardal sem getur tekið við skólastarfi á meðan ráðist er í meiriháttar viðhald í skólum svæðisins. Brýnt er að umferðaröryggisaðstæður verði rýndar samhliða og öryggi gangandi og hjólandi tryggt á leið til og frá svæðinu inn í íbúðarhverfin sem verið er að þjónusta. Sömuleiðis að haft sé samráð við foreldra barna í skólunum um útfærslurnar.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Ljóst er að enn frekari fækkun bílastæða við Laugardalsvöll getur leitt til þess að vallargestir og hallargestir leggi bifreiðum sínum í ríkari mæli en þegar er raunin í nálægu íbúahverfi. Ekki er ljóst hvernig aðgengi fatlaðra og hreyfihamlaðra að Laugardalsvelli verður tryggt miðað við fyrirliggjandi tillögu. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir því að leitað verði eftir umsögn aðgengis- og samráðsnefndar um málefni fatlaðs fólks í Reykjavík um málið. Nefndin er enn starfandi þótt nýr meirihluti Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks Fólksins og Vinstri grænna hafi látið það verða sitt fyrsta verk að leggja til að nefndin yrði lögð niður.