Aðalskipulag Reykjavíkur 2040
Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 340
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Laugardalur, breytt landnotkun - Skilgreining samfélagsþjónustu við Reykjaveg.
Svar

Samþykkt að auglýsa í samræmi við 3. mgr. 30. gr., sbr. 31 gr., sbr. 1 mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Ráðast þarf í viðgerðir og endurbætur á grunnskólunum í Laugardal: Langholtsskóla, Laugalækjarskóla og Laugarnesskóla. Vel ætti að vera unnt að ráðast í þær framkvæmdir í umræddum skólum án svo mikillar röskunar á skólastarfi, sem fyrirliggjandi tillaga felur í sér, t.d. með notkun færanlegra skólastofa. Var sá kostur talinn vera vel raunhæfur árið 2022 þegar samkomulag náðist milli borgarinnar og foreldrafélaga skólanna um lausn á húsnæðisvanda þeirra samkvæmt svonefndri sviðsmynd 1. Nú hefur meirihluti borgarstjórnar hins vegar rofið það samkomulag og hyggst fara aðra leið, sem mætt hefur mikilli andstöðu meðal foreldra og annarra íbúa í Laugardal. Ljóst er að enn frekari fækkun bílastæða við Laugardalsvöll getur leitt til þess að vallargestir og hallargestir leggi bifreiðum sínum í ríkari mæli en þegar er raunin í nálægu íbúahverfi. Þá er ekki ljóst hvernig aðgengi fatlaðra og hreyfihamlaðra að Laugardalsvelli verður tryggt miðað við fyrirliggjandi tillögu.