Lagt fram minnisblað
Nýs Landspítala ohf.
, dags. 5. mars 2025, að breytingu á deiliskipulagi Nýs Landspítala við Hringbraut fyrir Sóleyjartorgs. Tilfærslur eru gerðar frá fyrra skipulagi á stigatengingu milli sunnanverðs Sóleyjartorgs og bílakjallara undir Sóleyjartorgi (nr. 37). Breytingin gerir ráð fyrir lyftu- og stigaaðgengi á sér byggingarreit undir hýsi yfir nýjan yfirbyggðan tröppugang og lyftur sem tengir báðar hæðir bílakjallara við yfirborð torgssvæðisins norðan Borgarlínustöðvar á Burknagötu. Um leið helst aðgengi starfsmanna spítalans greitt í Meðferðarkjarnann (MFK) K1, aðgreint frá aðalinngangi / anddyrisbyggingu, sem styður við eina af meginforsendum í hönnun MFK um aðskilnað á ólíku flæði. Sóleyjartorgi er skipt í fjögur svæði eftir áherslum í notkun. 1. Efra torg við Hrafnsgötu er dvalar-, leik- og upplifunarsvæði ásamt hluta tröppumannvirkis sem tengist aðalinngangi, móttöku, mötuneyti og kaffiteríu MFK sem liggur við Hrafnsgötu, um 550m². Undir efra torginu er aðalhjólageymsla fyrir starfsmenn spítalans. Miðt2. org er rampa- og tröppusvæði útfært set-, dvalar- og upplifunarsvæði framan við anddyrisbyggingu MFK um 750m². 3. Aðkomusvæðið við aðalinngang meðferðarkjarna ásamt sérstökum inngangi bráðamóttöku með hringakstri og sleppistæðum í neyðarerindum. Einnig er aðkoma í ramp bílakjallarans sem og nýtt lyftu- og stigahús á svæðinu sem er um 1.600m². 4. Suðursvæði myndast milli Borgarlínustöðvar og lyftu- og stigahúss og er aðkomu- og dvalarsvæði um 600m². Meginmarkmið á hönnun torgsins gengur út á að skapa samhengi, heild og flæði um allt torgið með áherslu á öruggt og greitt aðgengi almennings og eftir atvikum lögreglu í neyðarerindum. Einnig byggja undir fjölbreytileika og mismunandi upplifun í öruggu umhverfi fyrir gangandi og akandi, tryggja skýra hönnun með tilliti til rötunar í umhverfi sem hentar starfsfólki, sjúklingum og aðstandendum, borgarbúum og öðrum gestum. Öll hönnun og útfærsla á yfirborðsefnum og götugögnum torgsins skal vera einföld að gerð sem hindrar hvorki flæði né skapar hættu. Hýsið er almennt léttbyggt og skal skyggja sem minnst á aðalbyggingu Landspítalans. Þak skal vera léttbyggt og mynda skyggni yfir lyftudyrum. Veggir eru úr gleri. Gert er ráð fyrir að hægt sé að mynda tímabundnar útfærslur á skjólmyndun með setaðstöðu við hýsið með léttum færanlegum götugögnum, t.a.m. bekkjum og sóltjöldum, allt eftir árstíðum og aðstæðum hverju sinni, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti og skýringarmyndum, dags. 6. mars 2025.