Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju minnisblað
Nýs Landspítala ohf.
, dags. 5. mars 2025, að breytingu á deiliskipulagi Nýs Landspítala við Hringbraut fyrir Sóleyjartorgs. Tilfærslur eru gerðar frá fyrra skipulagi á stigatengingu milli sunnanverðs Sóleyjartorgs og bílakjallara undir Sóleyjartorgi (nr. 37). Breytingin gerir ráð fyrir lyftu- og stigaaðgengi á sér byggingarreit undir hýsi yfir nýjan yfirbyggðan tröppugang og lyftur sem tengir báðar hæðir bílakjallara við yfirborð torgssvæðisins norðan Borgarlínustöðvar á Burknagötu. Um leið helst aðgengi starfsmanna spítalans greitt í Meðferðarkjarnann (MFK) K1, aðgreint frá aðalinngangi / anddyrisbyggingu, sem styður við eina af meginforsendum í hönnun MFK um aðskilnað á ólíku flæði. Sóleyjartorgi er skipt í fjögur svæði eftir áherslum í notkun. 1. Efra torg við Hrafnsgötu er dvalar-, leik- og upplifunarsvæði ásamt hluta tröppumannvirkis sem tengist aðalinngangi, móttöku, mötuneyti og kaffiteríu MFK sem liggur við Hrafnsgötu, um 550m². Undir efra torginu er aðalhjólageymsla fyrir starfsmenn spítalans. Miðt2. org er rampa- og tröppusvæði útfært set-, dvalar- og upplifunarsvæði framan við anddyrisbyggingu MFK um 750m². 3. Aðkomusvæðið við aðalinngang meðferðarkjarna ásamt sérstökum inngangi bráðamóttöku með hringakstri og sleppistæðum í neyðarerindum. Einnig er aðkoma í ramp bílakjallarans sem og nýtt lyftu- og stigahús á svæðinu sem er um 1.600m². 4. Suðursvæði myndast milli Borgarlínustöðvar og lyftu- og stigahúss og er aðkomu- og dvalarsvæði um 600m². Meginmarkmið á hönnun torgsins gengur út á að skapa samhengi, heild og flæði um allt torgið með áherslu á öruggt og greitt aðgengi almennings og eftir atvikum lögreglu í neyðarerindum. Einnig byggja undir fjölbreytileika og mismunandi upplifun í öruggu umhverfi fyrir gangandi og akandi, tryggja skýra hönnun með tilliti til rötunar í umhverfi sem hentar starfsfólki, sjúklingum og aðstandendum, borgarbúum og öðrum gestum. Öll hönnun og útfærsla á yfirborðsefnum og götugögnum torgsins skal vera einföld að gerð sem hindrar hvorki flæði né skapar hættu. Hýsið er almennt léttbyggt og skal skyggja sem minnst á aðalbyggingu Landspítalans. Þak skal vera léttbyggt og mynda skyggni yfir lyftudyrum. Veggir eru úr gleri. Gert er ráð fyrir að hægt sé að mynda tímabundnar útfærslur á skjólmyndun með setaðstöðu við hýsið með léttum færanlegum götugögnum, t.a.m. bekkjum og sóltjöldum, allt eftir árstíðum og aðstæðum hverju sinni, samkvæmt deiliskipulagsuppdráttum og skýringarmyndum, dags. 6. mars 2025. Tillagan var auglýst frá 27. mars 2025 til og með 13. maí 2025. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 13. maí 2025.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.