Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 330
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu til á fundi borgarráðs 13. júlí 2023 að Reykjavíkurborg stæði við skuldbindingar sínar um trégrisjun í Öskjuhlíð í þágu flugöryggis og metið yrði hversu mörg há tré þyrfti að grisja í þessu skyni. Tillögunni var vísað til umhverfis- og skipulagsráðs, sem óskaði eftir umsögn skrifstofu umhverfisgæða um málið. Rúmum mánuði síðar, 17. ágúst 2023, vísaði borgarráð erindi Isavia um sama mál til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs, þaðan sem því var einnig vísað til skrifstofu umhverfisgæða. Þrátt fyrir að eitt og hálft ár sé liðið frá því að umrædd erindi Isavia og tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins voru lögð fram, hefur engin umsögn um málið enn verið kynnt. Spurt er hverju þessi óhæfilegi dráttur sæti. Jafnframt er óskað eftir því að öll samskipti milli Reykjavíkurborgar og Isavia og/eða Samgöngustofu um málið verði lögð fram.