Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Flokkur fólksins óskar upplýsinga um hvernig hálkuvörnum var háttað yfir hátíðirnar m.a. í miðbæ Reykjavíkur. Ábendingar hafa borist um að þeim hafi verið verulega ábótavant og var Laugavegurinn t.d. sagður stórhættulegur á tímabili. Einnig er spurt hvort Reykjavíkurborg hafi upplýsingar um hvað margir leituðu á bráðamóttöku vegna beinbrota eða tognunar sem hlaust af því að detta vegna hálku á götum borgarinnar.