Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 349
Annað
Fyrirspurn
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda samgöngustjóra dags. 15. júlí 2025 og 23. júlí 2023 ásamt fylgigögnum Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun vegna 9. liðar fundargerðar samgöngustjóra: Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir því að umræddir staðir, gönguþverun við Árvað og gangbraut yfir Langholtsveg til móts við Hlunnavog, verði báðir merktir sem gangbraut, með viðeigandi umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingu í samræmi við reglugerð 250/2024 um umferðarmerki og notkun þeirra. Þ.e. umferðarskilti nr. 140 (gangbraut), 516 (gangbraut) og gangbrautarmerking nr. 1024 (hvítar samhliða rendur langsum á gangbraut eða tvær óbrotnar línur þvert yfir akbraut), þannig að ótvírætt sé að gangandi vegfarendur eiga forgang yfir umræddar akbrautir.