Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 351
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 20. ágúst 2025 ásamt fylgigögnum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun við fyrsta lið fundargerðar Samgöngustjóra: Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins minna á ítrekaðar tillögur sínar um að gripið verði til aðgerða til að stemma stigu við hraðakstri á göngu- og hjólastígum. Mikil brögð eru að því að léttum bifhjólum, bæði rafknúnum og bensíndrifnum, sé ekið eftir göngu- og hjólastígum, langt yfir þeim 25 kílómetra hámarkshraða sem gildir þar. Meirihluti bifhjólamanna fer að reglum en ljóst er að of margir virða ekki hraðareglur. Mörg dæmi eru um að rafhjólum sé ekið svo hratt nálægt gangandi eða hjólandi vegfarendum að liggi við stórslysi. Þá eru dæmi um að foreldrar banni ungum börnum sínum að fara út á hjólastíga borgarinnar því þeir séu orðnir að hraðbrautum fyrir vélknúin farartæki, þ.e. rafhjól. Setja þarf skýrar merkingar upp við göngu og hjólreiðastíga borgarinnar um að á þeim gildi 25 km hámarkshraði léttra bifhjóla.