Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Óskað er eftir því að úrbætur verði gerðar á lýsingu á göngustíg milli Úlfarsbrautar og Gerðarbrunns. Á þessum stað liggur stígurinn um tröppur í brattri brekku og er því full þörf á góðri lýsingu þar. Ljósastaur er við stíginn í brekkunni en á honum er enginn lampi og hann því óvirkur.