Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Óskað er eftir greinargerð um fyrirkomulag innheimtu hjá Bílastæðasjóði. Eiga þær kvartanir við rök að styðjast að ef greiðandi stöðugjalds hafi ekki aðgang að heimabanka, sé honum ekki gefinn kostur á að ljúka málinu með því að greiða höfuðstól (byrjunarupphæð) umræddrar kröfu, heldur sé krafan send til innheimtufyrirtækis, sem sendi þá greiðandanum innheimtukröfu með álagi?