Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 340
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram málskot Ástu Sigríðar Fjeldsted, dags. 3. júlí 2024, vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 4. apríl 2024, um að setja bílastæði á lóð nr. 7 við Fjólugötu, samkvæmt tillögu Landslags, dags. í febrúar 2024. Einnig er lagt fram bréf sendiráðs Slóveníu, dags. 2. júlí 2024, ásamt viðauka. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. apríl 2024. Jafnframt er lagt fram minnisblað um áhrif Vínarsamningsins, dags. 4. apríl 2025. Niðurstaða skipulagsfulltrúa sbr. umsögn, dags. 4. apríl 2024, staðfest með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokki fólksins gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokksins og einu atkvæði Framsóknarflokksins Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja rétt að heimila viðkomandi húseiganda að leggja bifreiðastæði á lóð sinni, líkt og fjölmörg fordæmi eru fyrir í götunni og öðrum nærliggjandi götum. Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: Framsókn vill benda á að afgreiðsla ráðsins á málskoti varðandi Fjólugötu 7 skortir rökstuðning. Tæplega er hægt að vísa í venjur um að banna gerð bílastæða inn á einkalóð út frá þeim rökum að bílar þurfi að aka yfir gangstéttar til komast í eða úr stæðum. Það fyrirkomulag að bílar aki í og úr stæðum yfir skilgreindar gangstéttir fyrirfinnst um alla borg. Það virkar handahófskennt að hafna beiðni íbúa á Fjólugötu 7 út frá þeim rökum.