Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 340
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning skrifstofu framkvæmda og viðhalds á viðgerðum gangstétta og göngustíga í Reykjavík. Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: Þakkað er fyrir kynningu á vinnu við ástandsmat gangstétta og gönguleiða. Verið er að leggja grunn að stefnu um gönguvæna borg og áætlun um uppbyggingu og viðhald gangstétta og gönguleiða um alla borg. Ástandsmat gangstétta og gönguleiða er hluti af því verkefni og mun það leggja grunn að viðhaldsátaki næstu ára í þessu efni. Þetta snýst um öryggi og aðgengi gangandi vegfarenda og barna á leið til skóla og frístunda sem einnig nýtist fólki með skerta hreyfifærni. Við fögnum þessari vinnu og teljum brýnt að viðhaldsátaki gönguleiða verði forgangsraðað í fjárfestingu til næstu ára. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins þakka fyrir kynningu á fyrirkomulagi viðhalds gangstétta og göngustíga í Reykjavík. Ljóst er að slíkt viðhald hefur verið stórlega vanrækt í borginni mörg undanfarin ár. Afar brýnt er að auka þetta viðhald verulega enda veldur lélegt ástand gangstétta víða óþægindum og hættu. Óskað er eftir því að fá fyrirliggjandi ástandsmat afhent. Einnig er óskað eftir því að upplýsingar um ástandsmat þeirra gangstétta, sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, hafa lagt til á kjörtímabilinu að verði lagfærðar. Upplýst var á fundinum að þær tillögur hafa verið metnar með tölulegum hætti á skrifstofu framkvæmda og viðhalds. Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun: Fögnum því að horft sé í auknu mæli til ástands gangstétta í borgarlandinu. Sorglegt er hversu illa gangstéttum hefur verið haldið við. Í borg fjölbreyttra fararmáta eru gangstéttir ekki síður mikilvægar en götur í borgarlandinu. Mikilvægt er að ástandsmatið sé sýnilegt íbúum til dæmis í Borgarvefsjá svo auðveldlega megi koma inn með ábendingar. Gott væri að sjá fjármagn í þetta verkefni sem samræmist mikilvægi þess fyrir íbúa okkar en þetta eru helstu samgönguleiðir stórs hluta íbúa.