Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lýsa megnum vonbrigðum með atburðarásina í Suður-Mjódd, sem hafði ömurlegar afleiðingar í för með sér fyrir íbúa að Árskógum. Þegar borgarráð veitti heimildir fyrir uppbyggingunni þann 15. júní 2023 lá skýrt fyrir í gögnum málsins að um þjónustu- og verslunarlóð væri að ræða. Án fyrirvara reis hins vegar á lóðinni stærðarinnar vöruhús sem vitanlega ætti betur heima á athafnasvæði. Ekki síst í ljósi þess að starfseminni munu fylgja hávaðasamir vöruflutningar, að líkindum á öllum tímum sólarhringsins, með tilheyrandi ama fyrir íbúa að Árskógum. Framgangur uppbyggingarinnar í kjölfar lóðaúthlutunar var á engu stigi máls kynntur skipulagsráði eða borgarráði. Málið var unnið áfram á skrifstofu borgarstjóra í samstarfi við byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja verulega ámælisvert að borgarstjóri taki til sín einhliða ákvörðunarvald með þessum hætti. Ljóst er að hver sem lausn málsins verður, mun niðurstaðan hafa verulegan kostnað í för með sér fyrir borgarsjóð, enda ber borgin óskipta ábyrgð á skipulagsslysinu. Málið allt er falleinkunn fyrir bæði stjórnsýslu borgarinnar og borgarstjóra.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Stórt vöruhús hefur nú verið reist steinsnar frá fjölbýlishúsi í Breiðholti. Íbúar í húsinu eru eðlilega miður sín með nýbygginguna því við þeim blasir 13 metra hár stálveggur vöruhúss sem blasir við sé horft út um stofuglugga íbúa blokkarinnar. Þetta mál þarf að rannsaka ofan í kjölinn af óháðum aðilum. Fulltrúi Flokks fólksins vill að húsið verði rifið eða breytt þannig að íbúar blokkarinnar verði sáttir. Ljóst er að hér mun borgarsjóður eiga eftir að blæða. Þetta mál eru mistök fyrst og fremst borgarinnar sem hefur skipulagsvaldið og getur sett inn í samninga kvaðir sem tryggja að svona lagað geti ekki gerst. Málið var ekki lagt fyrir borgarfulltrúa minnihlutans eftir því sem það tók breytingum og kom þessi útkoma því eins og reiðarslag. Lóðarhafar skipulögðu lóðina í friði og ró frá afskiptum borgaryfirvalda. Lóðin hefur gengið kaupum og sölum frá úthlutun á föstu verði, var upphaflega íbúðalóð með 7 litlum íbúðablokkum, síðan 4 lóðir með litlum þjónustu og verslunareiningum en er nú ein löng lóð með vöruhúsi og hefur lóðarhafi getað gert allt sem þeim sýndist án minnstu gagnrýnnar hugsunar eða að gæta hagsmuna nágranna enda skipulagsheimildir óvenju víðar. Íbúar voru grunlausir um hvernig endaniðurstaðan yrði.