Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 330
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram afgreiðslubréf borgarstjórnar, dags. 9. janúar á tillögu um stjórnsýsluúttekt á Álfabakka 2A-D og endurskoðun skipulagsferla til að tryggja gæði. Lagt er til að fela umhverfis- og skipulagssviði að vinna erindisbréf um þann hluta verkefnis sem er á verksviði sviðsins.
Svar

Samþykkt
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Flokkur fólksins lagði til á fundi borgarstjórnar 7. janúar sl. að borgarstjórn samþykki að fela innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar eða öðrum óháðum aðila að gera stjórnsýsluúttekt á skipulagsferli Álfabakka 2a, eða vöruskemmunni. Tillögunni var vísað frá en þess í stað samþykkti meirihlutinn sína eigin tillögu. Málið á að rannsaka en ekki er vitað hvenær niðurstöður liggja fyrir. En núna þarf að leggja áherslu á hvernig meirihlutinn hyggst beita sér í að fá þennan óskapnað lagaðan nú eða rifinn. Óttast er að ekkert verði gert, málið verði þaggað, beðið verði eftir að fólk gefist upp eins og svo oft áður. Það er ekki aðeins hörmulegt fyrir þá sem búa í blokkinni sem snýr að vöruskemmunni heldur öll nærliggjandi hús en í þeim mörgum búa 60 ára og eldri sem sækja félagsstarf í þjónustumiðstöð í Árskógum 4. Í Árskógum 2 er hjúkrunarheimilið Skógarbær, þar býr margt hreyfihamlað fólk. Í Búsetablokkinni er íbúakjarni fyrir fatlað fólk. Við skemmuferlíkið er íþróttavöllur ÍR fyrir börnin í hverfinu. Aukin umferð flutningabíla við íþróttavöllinn mun skapa hættu fyrir börnin sem sækja íþróttasvæðið hvort sem þau eru gangandi eða hjólandi.