Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 18. nóvember 2024 ásamt kæru nr. 159/2024, dags. 15. nóvember 2024, þar sem kærandi fer fram á að lokaúttekt frá 15.03.2023 sem var gerð á Brautarholti 18 til 20 verði afturkölluð þar sem ekki hafi verið farið eftir byggingarreglugerðum um fjölbýli. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 18. desember 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 12. febrúar 2025. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.