Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 335
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála dags. 22. apríl 2024 ásamt kæru nr. 50/2024, ódags. þar sem kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar frá 19. mars 2024 um að leggja á dagsektar frá og með 20. sama mánaðar. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 6. nóvember 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 27. febrúar 2025. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 19. mars 2024 um álagningu dagsekta að fjárhæð 25.000 kr. vegna óleyfisframkvæmda á borgarlandi við hlið lóðar nr. 30 við Lofnarbrunn. Dagsektir sem kunna að hafa verið lagðar á til og með uppkvaðningu þessa úrskurðar falli niður.