Lýsisreitur, reitur 1.520 - Breyting á skilmálum deiliskipulagi - Hringbraut 121
Hringbraut 121
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 991
28. nóvember, 2024
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. nóvember 2024 var lögð fram umsókn Yrki arkitekta ehf. , dags. 13. nóvember 2024, um breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.520, Lýsisreits, vegna lóðarinnar nr. 121 við Hringbraut. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að vera með sérstök búsetuúrræði í húsinu sbr. kafla 3.4.1 í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt minnisblaði skrifstofu stjórnsýslu og gæða, dags. 28. nóvember 2024.
Samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 er heimilt að staðsetja sértæk búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernda innan verslunar og þjónustusvæða og þá að undangenginni breytingu á deiliskipulagi. Í ljósi þess að umfang starfseminnar er óverulegt með hliðsjón af staðsetningu hennar á verslunar- og þjónustusvæði er gerð breyting á núverandi deiliskipulagi í samræmi við fyrirmæli í aðalskipulagi, sbr. minnisblað skrifstofu stjórnsýslu og gæða, dags. 28. nóvember 2024. Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka 2.3. við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar,sbr.  3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vakin athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.“
Svar

Vakin athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.“

101 Reykjavík
Landnúmer: 105922 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020690