Mosfellsbær - Austurhluti Hlíðavallar - Tillaga á vinnslustigi - Nýtt deiliskipulag - Umsagnarbeiðni
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 989
14. nóvember, 2024
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. október 2024 var lögð fram umsagnarbeiðni Mosfellsbæjar, dags. 24. október 2024, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa um drög að skipulagslýsingu, ódags., vegna áforma um breytingu á aðalskipulagi og gerð deiliskipulagsáætlunar vegna betrumbóta íþrótta- og útivistarsvæðis við sunnanverðan Leiruvog. Skipulagið mun skilgreina betur sambúð íþrótta og útivistar á svæðinu, þ.m.t. stíga, reiðleiða, fjöru og grænna svæða. Allur eystri helmingur Hlíðavallar verður hluti af nýju deiliskipulagi.  Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og deildarstjóra aðalskipulags er nú lagt fram að nýju.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.