Reitur 1.240.2, Bankareitur - (fsp) Breyting á deiliskipulagi - Laugavegur 120
Laugaveg 120
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1005
20. mars, 2025
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. desember 2024 var lögð fram fyrirspurn Miðbæjarhótels - Centerhotels ehf., dags. 27. október 2024, ásamt greinargerð Glámu-Kím, dags. 24. október 2024, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.240.2, Bankareits, vegna lóðarinnar nr. 120 við Laugaveg, sem felst í að heimilt verði að stækka núverandi inndregna hæð á eldri hluta byggingarinnar og að byggja inndregna hæð ofan á nýjan hluta hússins, fjölga þannig hótelherbergjum og fullnýta þá miklu möguleika sem staðsetning hótelsins í borgarlandinu gefur, samkvæmt tillögu Glámu-Kím, dags. 3. október 2024. Einnig er lögð fram ítarleg skuggavarpsgreining Glámu-Kím, dags. 24. janúar 2025.  Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. mars 2025.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. mars 2025, samþykkt.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. mars 2025, samþykkt.