Reitur 1.240.2, Bankareitur - (fsp) Breyting á deiliskipulagi - Laugavegur 120
Laugaveg 120
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 994
19. desember, 2024
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Miðbæjarhótels - Centerhotels ehf., dags. 27. október 2024, ásamt greinargerð Glámu-Kím, dags. 24. október 2024, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.240.2, Bankareits, vegna lóðarinnar nr. 120 við Laugaveg, sem felst í að heimilt verði að stækka núverandi inndregna hæð á eldri hluta byggingarinnar og að byggja inndregna hæð ofan á nýjan hluta hússins, fjölga þannig hótelherbergjum og fullnýta þá miklu möguleika sem staðsetning hótelsins í borgarlandinu gefur, samkvæmt tillögu Glámu-Kím, dags. 3. október 2024.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.