Fyrirspurn
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Óskað er eftir upplýsingum um ástæður þess að gatnalýsingu hefur verið ábótavant í Vesturbænum að undanförnu. Um er að ræða kafla við Hringbraut, Hofsvallagötu, Túngötu, Holtsgötu og e.t.v. fleiri götur, sbr. nýlegar tillögur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um málið. Er um að ræða þörf á peruskiptum eða víðtækari bilanir og ef svo er, í hverju felast þær?