Fyrirspurn
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Óskað er eftir greinargerð um fyrirkomulag gatnalýsingar í Reykjavík. Þar komi m.a. fram hvernig viðhaldi sé háttað, bæði peruskiptum og viðgerðum, og hvaða verkferlar gildi um þessi atriði. Hvernig er fylgst með því hvar þörf er á peruskiptum eða viðgerðum hverju sinni og hversu skjótt er brugðist við þegar um slíkt er að ræða?