Fyrirspurn
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Eftir íbúafundinn í Grafarvogi 7. október sl. höfðu verið sett upp plaköt, uppdrættir og myndir sem nú hefur verið rifið niður. Margir áttu eftir að skoða þetta betur. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga frá skipulagsyfirvöldum hvort vitað sé hverjir tóku þetta niður? Voru það skipulagsyfirvöld sjálf? Stendur til að setja þessa kynningu (bása) upp aftur? Eðlilegast væri að kynning væri uppi jafnlengi og umsagnarfresturinn í skipulagsgátt.