Fyrirspurn
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Nú stendur til að breyta JL-húsinu í búsetuúrræði fyrir 400 umsækjendur um alþjóðlega vernd. Óska fulltrúar Sjálfstæðisflokks eftir upplýsingum um það hvort breytt notkun hússins sé í samræmi við gildandi deiliskipulag? Hafa fyrirhugaðar breytingar á húsnæðinu verið lagðar fyrir byggingarfulltrúa til samþykktar? Jafnframt er óskað upplýsinga um það hvort um rekstrarleyfisskylda starfsemi sé að ræða, og hvort þegar hafi verið sótt um slíkt leyfi?