Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 330
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um samantekt upplýsinga um bílakjallara og bílastæðahús í Reykjavík, sbr. 26. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 2. október 2024. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 2. janúar 2025. Felld með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun: Ýmsar stafrænar þjónustuúrbætur hafa verið í gangi hjá bílastæðasjóði. Ekki er vilji til að hætta við þau verkefni. Næsta skref er að hefja skilvirkara eftirlit með notkun aksturstækja, þá er engin forsenda lengur fyrir notkun sektarmiða undir rúðuþurrkum. Víða mætti upplýsa betur um gjaldskyld bílastæði einkaaðila, hvar þau byrja og enda og um kostnað. Hinsvegar er ekki talið að þessi tillaga mæti þeim áskorunum sem þar birtast. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja óviðunandi að greiðendur stöðugjalda (stöðubrota og aukastöðugjalda), sem ekki hafa aðgang að heimabanka, sé ekki gefinn kostur á að ljúka málinu með því að greiða höfuðstól (byrjunarupphæð) umræddrar kröfu, heldur sé hann fyrst upplýstur um kröfuna þegar innheimtufyrirtæki sendir honum hana ásamt álagi. Ólíklegt er að slík vinnubrögð standist meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Umsögn liggur fyrir um tillögu áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að teknar verða saman upplýsingar um bílastæðahús og bílastæðakjallara í Reykjavík. Einnig, hvaða bílastæðahús eru rekin af borginni og hver eru í einkarekstri. Fram kemur að bílahús borgarinnar eru 7 Stjörnuport, Vitatorg, Kolaport, Vesturgata, Traðarkot, Bergstaðir og Ráðhúskjallari). Til viðbótar við hús borgarinnar eru stór bílahús í rekstri einkaaðila. Má þar t.a.m. nefna Höfðatorg, Hörpu og Hafnartorg. Fram kemur einnig að nær ómögulegt er að taka saman öll bílahús og bílakjallara sem eru í rekstri einkaaðila enda er það undir hverjum lóðarhafa fyrir sig komið hvernig hann heimilar afnot af sínum gæðum. Þetta eru merkilegar upplýsingar. Ef borgin sjálf veit ekki um eða hefur ekki yfirsýn yfir einkarekin bílahús og kjallara hvernig á þá almenningur að vita það. Þetta þarf að bæta. Mikilvægt er að til sé listi yfir þessi bílastæðahús og að hann sé aðgengilegur almenningi sem er sífellt að lenda í vandræðum vegna þess að fólk telur sig vera að greiða til borgarinnar í gegnum app en fær svo reikning inn á einkabanka sinn frá einhverjum einkaaðilum.