Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir göturými Suðurlandsbrautar frá gatnamótum við Skeiðarvog og til vesturs að gatnamótum við Lágmúla. Tillagan er hluti af 1. lotu Borgarlínu og er í samræmi við markmið og stefnu landsskipulagsstefnu, svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2040, Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 og rammahluta Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 - Fyrsta lota Borgarlínu: Ártún - Fossvogsbrú. Samkvæmt tillögunni fer Borgarlínan um Suðurlandsbraut á tveimur miðjusettum sérakreinum (almenningssamgangna) og er gert ráð fyrir göngu- og hjólastígum beggja vegna göturýmisins og gróðri á svæðum inn á milli. Þrjár Borgarlínustöðvar verða á svæðinu, við Glæsibæ, Laugardalshöll og Lágmúla, samkvæmt uppdráttum Yrki arkitekta, dags. 28. nóvember 2025, uppf. 27. mars 2026, og greinargerð Yrki arkitekta, dags. 28. nóvember 2025, uppf. 27. mars 2026. Einnig er lagt fram minnisblað Borgarlínunnar, dags. 16. október 2023, um vinstri beygjur við gatnamót Álfheima/Suðurlandsbrautar, samantekt Borgarlínunnar, dags. 31. mars 2026, um umferð á Suðurlandsbraut og bílastæðagreining VSB verkfræðistofu, dags. 2. apríl 2025 og samantekt, dags. 16. janúar 2026. Tillagan var auglýst frá 29. janúar 2026 til og með 12. mars 2026. Athugasemdir og umsagnir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 31. mars 2026.