Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks telur ekki forsendur til að samþykkja fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu fyrir Suðurlandsbraut sem hluta af 1. lotu Borgarlínu. Tillagan þrengir að atvinnustarfsemi á svæðinu og byggir á forsendum samgönguuppbyggingar sem verður tekin til endurskoðunar á næstu vikum og mánuðum. Suðurlandsbraut gegnir lykilhlutverki í samgöngukerfi Reykjavíkur og mikilvægt er að breytingar á göturýminu taki mið af heildarhagsmunum borgarbúa, umferðarflæði, atvinnustarfsemi og aðgengi. Því telur meirihlutinn rétt að endurmeta fyrirhugaðar framkvæmdir á þessum kafla í samhengi við endurskoðun Samgöngusáttmálans og framtíðarsýn nýrrar borgarstjórnar um þróun samgangna í Reykjavík áður en teknar eru ákvarðanir sem hafa varanleg áhrif á einn mikilvægasta samgönguás borgarinnar. Rétt er að taka fram að mikilvægt er að rösklega verði unnið við nýtt deiliskipulag svo það tefji ekki aðra uppbyggingu á svæðinu s.s Þjóðarhöll og fleiri verkefni.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar harma að tillaga að deiliskipulagi Suðurlandsbrautar hafi verið felld. Með því er bráðnauðsynlegum samgöngubótum stefnt í uppnám og innleiðing Borgarlínu tafin verulega með því að setja hönnunarferlið á Suðurlandsbraut aftur á byrjunarreit. Eðlilegri farvegur hefði verið að taka þær athugasemdir sem fram komu í auglýsingu deiliskipulagsins til skoðunar og aðlaga tillöguna útfrá þeim sjónarmiðum sem þar komu fram án þess að stefna markmiðum verkefnisins í tvísýnu. Úr því sem komið er leggja fulltrúar Samfylkingarinnar áherslu á að nýta tímann vel. Mikilvægt er að hlusta á raddir hagaðila við Suðurlandsbraut og íbúa í nágrenninu og finna útfærslur sem koma sem best til móts við ólík sjónarmið, en tryggja á sama tíma að heildarsýn og framgangur Borgarlínu haldist í takt við fyrri áform. Til að mæta áhyggjum rekstraraðila og ná fram meiri sátt um breytingu Suðurlandsbrautar og þeim framkvæmdum sem þeim fylgja leggja fulltrúar Samfylkingarinnar til að samhliða nýju deiliskipulagi verði lögð fram skýr og áfangaskipt framkvæmdaáætlun. Eins verði skoðað að skilgreina nánar áfangaskiptingu um umbreytingu göturýmisins sunnan götunnar þannig að tryggt verði að göngu- og hjólastígar og aukin gróður og umhverfisgæði verði þar enn tryggð í skipulagi götunnar þó uppbygging þeirra geti mögulega byggst upp í seinni áföngum framkvæmdarinnar.