Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 325
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Hlemm, sbr. 31. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 21. ágúst 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 23. október 2024. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Hlemmsvæðið hefur verið vinnustæði um all nokkurn tíma. Flokkur fólksins hefur oft spurt sig hvort þessi framkvæmd hefði ekki mátt bíða betri tíma enda nóg annað að gera við fjármagn borgarinnar ef gera á betur við börn og fjölskyldur þeirra. Ekki hefur verið hægt að veita alla lögbundna þjónustu. Óljóst er um verklok svo ekki sé minnst á heildarkostnað. Oft þegar unnið er samkvæmt einhverri verðlaunatillögu vill verkið verða dýrara, fara langt fram úr áætlun. Þetta sýnir reynslan. Ljóst er þó að margt er búið að gera. Fram kemur að fyrsta heildstæða tímaáætlun var lögð fyrir og samþykkt sumarið 2022 en hún gerði ráð fyrir að framkvæmdum yrði lokið í lok árs 2025. Er sú tímaáætlun að standast? Ekki liggur fyrir kostnaðaráætlun á þeim áföngum sem eftir eru en það eru Hlemmtorg, Rauðarárstígur suður, Þverholt og Stórholt. Er ekki tímabært að leggja þær fram?