Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um eyðingu fjara í borgarlandinu, sbr. 32. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 31. maí 2023. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 23. október 2024.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Flokkur fólksins spurði um eyðingu fjara í borginni t.d. hversu stór hluti af fjörum í borgarlandinu hafa verið huldar framandi jarðvegi, steypubrotum og öðrum úrgangi, og sem kallast landfylling innan borgarkerfisins og hversu að stór hluti af þeim eru í Skerjafirði? Svarandi telur að um helmingi fjara hafi verið eytt og tekur fram að ,, Ósnortin eða a.m.k. lítt snortin fjara er um helmingur af strandlengjunni, milli 14 og 15 km. Það er megnið af strönd Skerjafjarðar, Laugarnes, Grafarvogur og svo norðurströndin frá Gufunes að ósum Úlfarsár.” Nú vill svo til að við horfum á eyðingu fjöru við Laugarnes. Fulltrúi Flokks fólksins telur það næsta víst er að ekkert lát er á fjörueyðingu og nú er hugtakið ,,líffræðilegur fjölbreytileiki” víðs fjarri. Í glænýrri frétt segir að Ísland sé langt undir meðaltali OECD ríkjanna þegar kemur að skipulögðum grænum svæðum í þéttbýli. Einungis 3.5% svæða í þéttbýli eru skipulögð sem græn svæði hérlendis samanborið við 17% meðaltal OECD ríkjanna.