Samþykkt. Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Með tillögunni er fallið frá þéttingaráformum síðasta kjörtímabils í Grafarvogi og viðkomandi máli lokað í Skipulagssjá. Mikilvægt er að eyða óvissu meðal íbúa um þessi áform og tryggja að opinber skipulagsgögn endurspegli ákvörðunina. Með skýrum ákvörðunum, gagnsæi og raunverulegu samtali við íbúa vill meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks byggja upp traust í Grafarvogi. Meirihlutinn leggur áherslu á að framtíðaruppbygging í grónum hverfum taki mið af sérkennum þeirra, innviðum og gæðum nærumhverfis og verði mótuð í virku samráði við íbúa.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Það er alltaf mikilvægt og nauðsynlegt að hlusta á og taka tillit til sjónarmiða íbúa. En við þurfum líka og ekki síður að horfa til hagsmuna hverfisins og borgarinnar í heild - bæði til skemmri og lengri tíma. Skipulag þarf ekki aðeins að taka mið af þeim sem búa í hverfinu í dag, heldur líka þeim sem vilja búa þar í framtíðinni. Ungu fólki sem vill eignast sína fyrstu íbúð og eldra fólki sem vill minnka við sig án þess að yfirgefa hverfið. Íbúum í Reykjavík mun fjölga verulega á næstu áratugum og við glímum nú þegar við húsnæðis- og innviðaskuld. Skynsamleg uppbygging í grónum hverfum getur nýtt skóla, veitur, samgöngur og nærþjónustu betur. Fleiri íbúar skapa jafnframt betri grundvöll fyrir hverfisverslun, þjónustu og fjölbreytt atvinnulíf. Ef við nýtum ekki þessi tækifæri eykst þrýstingur á útþenslu byggðar, lengri ferðalög, meiri umferð og kostnaðarsamari innviði. Það er mikilvægt og sjálfsagt að hlusta á ólíkar skoðanir íbúa borgarinnar. En ábyrgð okkar er líka að skipuleggja borgina fyrir komandi kynslóðir.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Að falla frá áformum um áframhaldandi uppbyggingu húsnæðis og fegrun grænna svæða í Grafarvogi, sem var vel unnið verkefni og byggt á gögnum og ítarlegri rýni, er afar óskynsamlegt í fjölmörgu tilliti. Mun sagan ekki fara vel með þessa ákvörðun Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks.