Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti DCB fagnar yfirstandandi uppfærslu á Hlemmsvæðinu og styður að umbreytingu svæðisins verði haldið áfram. Hlemmstorg verður lykilhlekkur í bættu aðgengi almenningssamgangna og virkra ferðamáta að miðborginni og um leið grænt og aðlaðandi borgarrými fyrir fólk. Sérstakt ánægjuefni er áherslan á leik, aðgengi fyrir alla og aukinn gróður. Framundan eru mikilvægar framkvæmdir Veitna og verksamningur um framkvæmdina er í gildi. Meirihlutinn leggur áherslu á að áfram verði lögð rík áhersla á samhæfingu framkvæmda, skýra upplýsingagjöf til íbúa og rekstraraðila og öruggar og greiðfærar leiðir um svæðið á framkvæmdatíma. Mikilvægt er að áætlanir um verklok standist svo borgarbúar geti sem fyrst notið hins nýja Hlemmsvæðis til fulls.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því innilega að sjá hversu mikill kraftur er í framkvæmdum við Hlemm. Torgið er að verða mikilvægur áfangastaður í borginni og eflist ár frá ári sem mótvægi við aðra kjarna vestar í miðborginni. Þannig styrkist miðborgin sem heild og fjölbreytni mannlífsins eykst. Jafnframt er ánægjulegt að sjá framkvæmdum Betri samgangna við Borgarlínuna á efsta hluta Laugavegar vinda fram. Með tilkomu Borgarlínunnar við Hlemm mun torgið endurheimta hlutverk sitt sem mikilvægur upphafs- og endapunktur almenningssamgangna fyrir íbúa og gesti miðborgarinnar. Þar með skapast enn betri forsendur til að leysa úr læðingi þau miklu tækifæri sem svæðið býr yfir. Framkvæmdirnar við Hlemm og endurnýjun svæðisins í kring sýna hvernig skýr framtíðarsýn og metnaðarfull fjárfesting í almenningsgæðum, svo sem mannvænum torgum og öflugum almenningssamgöngum, stuðlar að meira lifandi, aðgengilegri og skemmtilegri borg fyrir okkur öll.