Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu til norðurs upp að og ofaná mhl. 03, gera verönd á hluta
þaks, innrétta geymslur í kjallara og skrifstofur á hæð og sameina í einn matshluta hús á lóð nr. 25
við Skólavörðustíg.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Erindi fylgir yfirlit breytinga og greinargerð brunahönnuðar dags. 15. maí 2024.
Einnig fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. ágúst 2024.