Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. nóvember 2024 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu til norðurs upp að og ofaná mhl. 03, byggja svalir, innrétta geymslur í kjallara og skrifstofur á hæð og sameina í einn matshluta hús á lóð nr. 25 við Skólavörðustíg. Erindið var grenndarkynnt frá 10. desember 2024 til og með 14. janúar 2025. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. febrúar 2025.
Svar
Samþykkt með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2025, með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs.