Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. júní 2024 var lögð fram umsagnarbeiðni Kópavogsbæjar, dags. 10. júní 2024, þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vatnsendahvarfs, athafnasvæðis, svæði 3 vegna lóðarinnar nr. 4 við Tónahvarf. Í breytingunni felst að lóðarmörkum verður breytt og stofnuð verði ný lóð innan núverandi lóðarmarka Tónahvarfs 4, nýja lóðin mun vera númer 4A. Þar verður komið fyrir 24 m háu fjarskiptamastri. Kvöð um aðkomu að lóð 4A verður um lóð Tónahvarfs 4. Fyrirkomulag bílastæða Tónahvarfs 4 mun breytast en bílastæðafjöldi helst óbreyttur. Viðmið um fjölda bílastæða er 1 stæði fyrir hverja 50 m² atvinnuhúsnæðis. Bílastæði verði nánar útfærð við hönnun. Lóð Tónahvarfs 4 fer úr 4823 m² í 4566 m² og nýtingarhlutfall fer úr 0,6 í 0,64. Byggingarmagn helst óbreytt. Ný lóð Tónahvarfs 4A verður 257 m² og gert er ráð fyrir einu bílastæði og athafnasvæði innan lóðar. Einnig er lagður fram deiliskipulagsuppdráttur, ódags. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið.