Fyrirspurn
Lögð fram umsagnarbeiðni Kópavogsbæjar, dags. 10. júní 2024, þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vatnsendahvarfs, athafnasvæðis, svæði 3 vegna lóðarinnar nr. 4 við Tónahvarf. Í breytingunni felst að lóðarmörkum verður breytt og stofnuð verði ný lóð innan núverandi lóðarmarka Tónahvarfs 4, nýja lóðin mun vera númer 4A. Þar verður komið fyrir 24 m háu fjarskiptamastri. Kvöð um aðkomu að lóð 4A verður um lóð Tónahvarfs 4. Fyrirkomulag bílastæða Tónahvarfs 4 mun breytast en bílastæðafjöldi helst óbreyttur. Viðmið um fjölda bílastæða er 1 stæði fyrir hverja 50 m² atvinnuhúsnæðis. Bílastæði verði nánar útfærð við hönnun. Lóð Tónahvarfs 4 fer úr 4823 m² í 4566 m² og nýtingarhlutfall fer úr 0,6 í 0,64. Byggingarmagn helst óbreytt. Ný lóð Tónahvarfs 4A verður 257 m² og gert er ráð fyrir einu bílastæði og athafnasvæði innan lóðar. Einnig er lagður fram deiliskipulagsuppdráttur, ódags.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.