Breiðholt I - breyting á deiliskipulagi - Arnarbakki 2-6, 8 og 10
Arnarbakki 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 974
25. júlí, 2024
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Grímu arkitekta ehf. , dags. 26. mars 2024, um breytingu á deiliskipulagi Breiðholt I vegna lóðanna nr. 2-6, 8 og 10 við Arnarbakka. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að koma fyrir leikskóla á jarðhæð húss á lóð nr. 4, stækka lóð og auka byggingarmagn. Færa íbúðarlóð nr. 6 innan svæðisins og breyta henni í lóð nr. 10. Lóð nr. 6 verður leikskólalóð og heimilt verður að reisa á henni útileikstofu. Stúdentaíbúðum í húsum nr. 2 og 4 og íbúðum í húsi nr. 10 (áður nr. 6) verður fjölgað og þakformum húsa nr. 2, 4 og 10 verður breytt. Sameiginleg lóð verður gerð fyrir bílastæði á svæðinu og fylgilóð verður gerð fyrir djúpgáma á svæðinu ásamt því að byggingarreitur verður gerður fyrir hjóla- og sorpgeymslur, samkvæmt deiliskipulags- og skuggvarpsuppdr. Tendru Arkitektur og Grímu arkitekta, dags. 26. mars 2024. Einnig er lagt fram samgöngumat Mannvits fyrir Arnarbakka, útgáfa 9, dags. 24. apríl 2024. Tillagan var auglýst frá 6. júní 2024 til og með 19. júlí 2024. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Þorsteinn Kristinsson, dags. 9. júní 2024, Kjartan Birgisson, dags. 10. júní 2024, Íbúaráð Breiðholts, dags. 13. júní 2024, Ásgrímur Guðmundsson, dags. 13. júní 2024, Hafdís Gréta Þórsdóttir, 13. júní 2024, Eysteinn Helgason, dags. 15. júlí 2024 og Veitur sendu umsögn, dags. 9. júlí 2024.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.