Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. apríl 2024 var lögð fram umsókn
Grímu arkitekta ehf.
, dags. 26. mars 2024, um breytingu á deiliskipulagi Breiðholt I vegna lóðanna nr. 2-6, 8 og 10 við Arnarbakka. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að koma fyrir leikskóla á jarðhæð húss á lóð nr. 4, stækka lóð og auka byggingarmagn. Færa íbúðarlóð nr. 6 innan svæðisins og breyta henni í lóð nr. 10. Lóð nr. 6 verður leikskólalóð og heimilt verður að reisa á henni útileikstofu. Stúdentaíbúðum í húsum nr. 2 og 4 og íbúðum í húsi nr. 10 (áður nr. 6) verður fjölgað og þakformum húsa nr. 2, 4 og 10 verður breytt. Sameiginleg lóð verður gerð fyrir bílastæði á svæðinu og fylgilóð verður gerð fyrir djúpgáma á svæðinu ásamt því að byggingarreitur verður gerður fyrir hjóla- og sorpgeymslur, samkvæmt deiliskipulags- og skuggvarpsuppdr. Tendra Arkitektur og Gríma arkitekta, dags. 26. mars 2024. Einnig er lagt fram samgöngumat Mannvits fyrir Arnarbakka, útgáfa 9, dags. 24. apríl 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.