Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. febrúar 2025 þar sem sótt er um leyfi til að sótt um að hækka húsið um tvær hæðir, þar sem efsta hæðin er inndregin þakhæð bæði til norður og suður, hækka rishæð, fjarlægja austara stigahús, breyta gluggum, byggja svalir, koma fyrir lyftu og innrétta gististað í flokki II, teg. b,, 39 gistirými fyrir hámark 94 gesti á efri hæðum, verslunarrými á jarðhæð, gera þaksvalir á vesturbyggingu, sameina mhl. 02 og 03 og innrétta tvær vinnustofur og sorpgeymslu í bakhúsi á lóð nr. 16 við Brautarholt. Engin bílastæði eru innan lóðar og verða bílastæði í borgarlandi. Samkvæmt Reglum um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík samþykkt í borgarráði 14. mars 2024, er viðmið um fjölda bílastæða fyrir gististarfsemi 0,1 stæði per herbergi. Þarf að gera ráð fyrir 4 stæðum auk 2 fyrir verslun á jarðhæð samtals 6 stæði, þar af er eitt fyrir hreyfihamlaða. Auk þess verða 21 hjólastæði á lóðinni og eru þau staðsett við Brautarholt og í inngarði. Stærð lóðar verður 703,0 m2 eftir að lóðarmörk verða færð að framhlið. Nýtingarhlutfall verður samkvæmt nýrri lóðarstærð og skráningartöflu A rými + B rými 1.860,9 (1.700,9 m2 mhl 01 + 160,6 m2 mhl 02) / 703,0 = 2,6.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Brautarholti 10-14, 18-20, Skipholti 11-13 og 15 og Laugavegi 162, 164 og 166, þegar uppfærðir uppdrættir berast.