Brautarholt 16
Síðast Frestað á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 338
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu skipulagsfulltrúa er lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. febrúar 2025 þar sem sótt er um leyfi til að sótt um að hækka húsið um tvær hæðir, þar sem efsta hæðin er inndregin þakhæð bæði til norður og suður, fjarlægja austara stigahús, breyta gluggum, byggja svalir, koma fyrir lyftu og innrétta gististað í flokki II, teg. b, 39 gistirými fyrir hámark 94 gesti á efri hæðum, verslunarrými á jarðhæð, gera þaksvalir á vesturbyggingu, sameina mhl. 02 og 03 og innrétta tvær vinnustofur og sorpgeymslu í bakhúsi á lóð nr. 16 við Brautarholt. Engin bílastæði eru innan lóðar og verða bílastæði í borgarlandi. Samkvæmt Reglum um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík samþykkt í borgarráði 14. mars 2024, er viðmið um fjölda bílastæða fyrir gististarfsemi 0,1 stæði per herbergi. Þarf að gera ráð fyrir 4 stæðum auk 2 fyrir verslun á jarðhæð samtals 6 stæði, þar af er eitt fyrir hreyfihamlaða. Auk þess verða 21 hjólastæði á lóðinni og eru þau staðsett við Brautarholt og í inngarði. Stærð lóðar verður 703,0 m2 eftir að lóðarmörk verða færð að framhlið. Nýtingarhlutfall verður samkvæmt nýrri lóðarstærð og skráningartöflu A rými + B rými 1.860,9 (1.700,9 m2 mhl 01 + 160,6 m2 mhl 02) / 703,0 = 2,6. Erindi var grenndarkynnt frá 25. febrúar 2025 til og með 25. mars 2025. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. mars 2025. Lagt er til að tillagan verði samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa og málinu vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
Svar

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 20. mars 2025, með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins:
Að óbreyttu mun fyrirliggjandi tillaga auka enn á það ófremdarástand, sem nú ríkir í Brautarholti og nærliggjandi götum vegna skorts á bílastæðum. Verið er að hækka Brautarholt 16 um tvær hæðir og bæta við 39 gistirýmum fyrir 94 gesti að hámarki. Engin bifreiðastæði eru innan lóðar og verður því notast við þau stæði sem fyrir eru í götunni. Sex bílastæði eru við húsið, sem dugar engan veginn fyrir tugi ferðamanna, sem munu dveljast í húsinu hverju sinni. Ef bílastæðum verður ekki fjölgað í tengslum við stækkun hússins, mun það óhjákvæmilega auka á það ófremdarástand, sem ríkir nú í bílastæðamálum í hverfinu.