Skúlagata 26
Skúlagata 26
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1173
3. september, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja 16 hæða hótel, stálgrindarhús með steyptum stiga- og lyftukjörnum, einangrað og klætt áli/gleri, með 210 herbergjum á áður samþykktum þriggja hæða kjallara og verður þriðji áfangi uppbyggingar á lóð nr. 26 við Skúlagötu. Erindi fylgir greinargerð um brunavarnir frá Örugg dags. 11. júní 2024, greinargerð um hljóðvist frá Myrru dags. 15. janúar 2024 og greinargerð hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða dags. 15. febrúar 2024. Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Eftir stækkun, A + B-rými: 14.251,2 ferm., 47.223,8 rúmm. Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. apríl 2024.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr.
2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.Með vísan til
samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við
byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Skilyrt er að ný
eignaskiptayfirlýsing sé gerð, þar sem verið er að gera breytingar á fjöleignarhúsi.
Eignaskiptayfirlýsandi þarf að senda staðfestingu á að byrjað sé að gera eignaskiptayfirlýsinga
á eignaskiptayfirlysing@reykjavik.is fyrir útgáfu byggingarleyfis. Þinglýsa þarf
eignaskipatyfirlýsingu fyrir lokaúttekt.