Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. febrúar 2024 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 16 hæða hótel, stálgrindarhús með steyptum stiga- og lyftukjörnum, einangrað og klætt áli/gleri, með 210 herbergjum á áður samþykktum þriggja hæða kjallara og verður þriðji áfangi uppbyggingar á lóð nr. 26 við Skúlagötu. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.