Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. febrúar 2024 var lögð fram fyrirspurn Þorgeirs Kristjáns Eybergs, dags. 29. janúar 2024, um fjölgun bílastæða á lóð nr. 3 við Frostafold. Einnig eru lagðar fram ljósmyndir. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. febrúar 2024.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 29. febrúar 2024.