Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. janúar 2024 var lögð fram umsókn
Stillingar hf.
, dags. 2. janúar 2024, ásamt bréfi Teiknistofunnar Storð, ehf. dags. 21. desember 2023, um breytingu á deiliskipulagi Klettháls vegna lóðarinnar nr. 5 við Klettháls. Í breytingunni sem lögð er til felst að nýtingarhlutfall lóðar hækkar, skilgreindur er innri byggingarreitur á lóðinni og núverandi afmörkun byggingarreits er endurskoðuð, ásamt því að gróðursvæði er afmarkað á lóðarmörkum og samræmt við endurskoðun á byggingarreit, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdráttum Teiknistofunnar Storð, dags. 8. apríl 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Kletthálsi 3 og 7 og Tunguháls 8.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. gr. 7. 6 gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.