Klettháls - breyting á deiliskipulagi - Klettháls 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 970
20. júní, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Stillingar hf. , dags. 2. janúar 2024, ásamt bréfi Teiknistofunnar Storð, ehf. dags. 21. desember 2023, um breytingu á deiliskipulagi Klettháls vegna lóðarinnar nr. 5 við Klettháls. Í breytingunni sem lögð er til felst að nýtingarhlutfall lóðar hækkar, skilgreindur er innri byggingarreitur á lóðinni og núverandi afmörkun byggingarreits er endurskoðuð, ásamt því að gróðursvæði er afmarkað á lóðarmörkum og samræmt við endurskoðun á byggingarreit, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdráttum Teiknistofunnar Storð, dags. 8. apríl 2024. Tillagan var grenndarkynnt frá 15. maí 2024 til og með 13. júní 2024. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram ábending Veitna, dags. 6. júní 2024.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.