Gufunes 1. áfangi - breyting á deiliskipulagi - Jöfursbás
Gufunes 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 944
7. desember, 2023
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Gufuness vegna endurskipulagningar á bílastæðum. Í breytingunni sem lögð er til felst að við Jöfursbás færast skipulagsmörk til austurs og stækkar skipulagssvæðið um 1,4 ha, auk þess er bílastæðum við Jöfursbás er fjölgað um samtals 61 stæði, samkvæmt uppdr. Verkís, dags. 20. nóvember 2023. Gert er ráð fyrir gönguleið að og meðfram bílastæðum, til samræmis við aðliggjandi deiliskipulag.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.