Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 16. nóvember 2023 var lögð fram fyrirspurn Jakobs Líndal, dags. 6. nóvember 2023, ásamt bréfi Alarks arkitekta ehf., dags. 6. nóvember 2023, um að skipta einbýlishúsi á lóð nr. 4 við Furugerði upp í tvær íbúðir á sitthvoru fastanúmerinu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. janúar 2024. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. janúar 2024, samþykkt.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. janúar 2024, samþykkt.