Fyrirspurn
Sigtún 51 - geymslustaður ökutækjaleigu - umsagnarbeiðni - USK23090279 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. september 2023 var lagt fram bréf samgöngustofu, dags. 26. september 2023, þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar Lara De Stefano f.h. DeStefano Bíla ehf. um geymslustað ökutækja að Sigtúni 51. Þrjú ökutæki eru ætluð til geymslu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. október 2023. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 5. október 2023. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa, Sigtún 51