Fyrirspurn
Skildinganes - breyting á deiliskipulagi - Bauganes 24 - SN220769 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. júlí 2023 var lögð fram umsókn Sigurðar Hallgrímssonar og Örnu Bjarkar Kristinsdóttur, dags. 1. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Skildinganess vegna lóðarinnar nr. 24. við Bauganes. Í breytingunni sem lögð er til felst að stækka byggingarreit að hluta til, til austurs, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Arkþing/Nordic, dags. 5. júlí 2023 Samþykkt var að grenndarkynna tillöguna og er erindi nú lagt fram að nýju. Leiðrétt bókun frá fundi skipulagsfulltrúa 6. júlí 2023. Rétt bókun er: Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Bauganes 22, 26, 28 og 30, Skildinganes 41, 43, 51 og 53. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.