Fyrirspurn
Kjalarnes, Esjumelar - framkvæmdaleyfi - USK23080220 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. ágúst 2023 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 25. ágúst 2023, um framkvæmdaleyfi fyrir jarðvegsskipti í landi Esjumela á Kjalarnesi, nánar til tekið fyrir uppgröft og fyllingar vegna fyrirhugaðra nýrra gatna að Norðurgrafarvegi, Málmsléttu og Kalkléttu. Einnig eru lagðir fram uppdrættir VSÓ ráðgjafar, dags. 23. júní 2023 og 28. ágúst 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2023. Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 21. september 2023. Vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Kjalarnes, Esjumelar