Lágmúli 6-8
Lágmúli 6-8
Síðast Frestað á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 933
21. september, 2023
Annað
Fyrirspurn
Lágmúli 6-8 - USK23070224 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. ágúst 2023 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. ágúst 2023 þar sem sótt er um leyfi fyrir rafrænt ljósaskilti á S-V vegg Lágmúla 6-8. Skiltið er fest á stálburðarvirki sem fest er á steyptan útvegg mannvirkisins. Stærð skiltis er 580 x 580 cm. Flettiskilti hefur verið á þessum veggfleti í áraraðir og var upphaflega samþykkt 1991. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. september 2023. Neikvætt, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. september 2023. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Lágmúli 6-8